Engir hópleikir eða þvinguð liðsefling. Hagnýt fræðsla sem byggir á aðferðafræði sem virkar, með innihaldi sem situr eftir og verkfærum sem nýtast strax. Við vinnum með ykkar áskoranir og gerum það á þann hátt að það er bæði lifandi og skemmtilegt.
⏱
45 mínútur — 2 dagarFrá stuttum fyrirlestri til djúprar vinnustofu
✦
Sniðið að ykkurAðlagað ykkar teymi og áskorunum
★
Reyndir leiðbeinendurÁratuga reynsla af stjórnendaráðgjöf
Það sem við bjóðum
Fræðsla og æfingar sem skila árangri
Allt frá stuttum uppbrotsfyrirlestrum til djúpra vinnustofa. Smelltu á viðkomandi þjónustu til að sjá meira.
🤝
2 hálfir dagar · Vinnustofa
Samhugur stjórnenda
Tveggja daga vinnustofa þar sem stjórnendateymið samhuga áskoranir, býr til sameiginlega sýn og setur upp raunhæfa aðgerðaáætlun.
Sjá nánar
⚡
45–90 mín · Fyrirlestur
Áhrifarík teymi
Hvað er það sem skilur að ágæt teymi frá frábærum? Rannsóknarbasaður fyrirlestur um sálrænt öryggi, traust og helgun í starfi.
Sjá nánar
🚀
2 hálfir dagar · Vinnustofa
Stefnuhraðall
Stytt útgáfa Stefnuhraðallsins. Stjórnendateymið fer í gegnum gildi og menningu, langtímasýn og OKR-mörkun, og kemur út með samhæfða stefnu sem lifir í daglegu starfi.
Sjá nánar
🔄
45 mín fyrirlestur · 1/2 dagur vinnustofa
Æviskeið fyrirtækja
Hvar er fyrirtækið þitt á æviskeiðinu? Ólíkt mannfólki þurfa fyrirtæki ekki að hrörna, það gerist bara ef ekkert er að gert. Adizes-aðferðafræðin kennir hvað þarf á hverju stigi.
Sjá nánar
🎯
45 mín · Fyrirlestur
Stjórnendahlutverkin — PAEI
Það er enginn fullkominn stjórnandi til. PAEI-aðferð Adizes sýnir hvers vegna sterkir leiðtogar byggja upp komplementer teymi þar sem fjögur lykilhlutverkin eru til staðar.
Sjá nánar
✨
Sniðið að ykkur
Sérsniðnar vinnustofur
Komið með ykkar eigið efni, hvaða svið sem það er, við stýrum vinnustofunni þannig að árangurinn náist.
Sjá nánar
Leiðbeinendurnir
Þið eruð í góðum höndum
Áratuga reynsla af stjórnendaráðgjöf og þjálfun hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum, hér og erlendis.
Maríanna Magnúsdóttir
Ráðgjafi · Leiðbeinandi
Sérhæfir sig í nútímalegri stjórnun og leiðtogafærni sem tengist innleiðingu stefnu og skipulagsbreytinga. Reynslumikil í stjórnunarstörfum, þjálfun, teymisleiðsögn og fræðslu.
Víðtæk reynsla af fjármálastjórnun fyrirtækja og stofnana. Hefur að undanförnu sérhæft sig í stefnumótunarráðgjöf, stefnuinnleiðingu og breytingastjórnun. MS-gráða í reikningsskilum og endurskoðun.
Orð eru til alls fyrst, og þau þurfa að leiða til sameiginlegs vilja þeirra sem stýra þróun og breytingum. Samhugur stjórnenda er vinnustofa þar sem stjórnendateymið skapar sameiginlega sýn, greinir starfsemina hreinskilið undir stjórn utanaðkomandi umræðustjóra og kemur út með samhæfða aðgerðaáætlun sem allir standa að baki.
Markmið og afurð
Skapa traust umhverfi samvinnu og lærdóms
Koma af stað breytingarferli með því að þátttakendur sjái sameiginlega þörf fyrir breytingar
Setja fram aðgerðaáætlun sem er studd af stjórnendateyminu öllu
Kenna teyminu að greina, meta og forgangsraða málum með samvirkum hætti, án þess að leita að sökudólgum
Meta hvort vandamálin séu eðlileg eða óeðlileg miðað við æviskeið fyrirtækisins
Auka skilning teymisins á því hvernig allir þættir starfseminnar tengjast saman og eru hver öðrum háðir
Lykilþættir í framkvæmd
Málin eru rædd af þeim sem ætla að bindast samtökum um aukinn árangur
Vinnustofunni er stjórnað þannig að fólki er auðveldað að bera upp hvaða málefni sem er, en tryggt að umræðan verði málefnaleg
Sjónum er beint að orsökum frekar en afleiðingum og að tækifærum sem teymið hefur vald á að leysa
Vinnustofan endar með stefnu um úrlausnarferli og skýrri aðgerðaáætlun um næstu skref
Árangur sem hefur skilað sér
Samkvæmt reynslu hjá nokkur hundruð fyrirtækjum síðustu 20 ár má gera ráð fyrir eftirfarandi árangri á fyrsta ári: 40% mála leyst, 40% mála á lausnaleið og 20% mála standa eftir.
Hvað þurfa teymi til að virka vel? Áratuga rannsóknir á áhrifaríkum teymum benda á sömu fjóra þætti, GRIP: Markmið (Goals), Hlutverk (Roles), Samskipti (Interaction) og Ferli (Processes). Þessi fyrirlestur fer í gegnum hvern þátt, hvar mörg teymi missa marks og hvar tíminn skilar mestu þegar bæta á árangur.
Það sem fjallað er um
G — Markmið: hvers vegna skýrt sameiginlegt markmið er forsenda alls hins
R — Hlutverk: hvenær óljós hlutverk skaða mest og hvernig á að skýra þau
I — Samskipti: traust, sálrænt öryggi og niðurstöður Google Project Aristotle
P — Ferli: einföld ferli sem öll teymi þurfa, og þau sem oft vantar
Hentar fyrir
Stjórnendafundi og kick-off vinnustofur
Stjórnendaþjálfun og leiðtogaprógramm
Mannauðsviðburði og fagþing
Hvers vegna þetta skiptir máli
Samkvæmt rannsóknum Gallup eru að jafnaði aðeins um 20–25% starfsmanna virkilega með á vinnustaðnum sínum. Teymi sem skora hátt í helgun og sálrænu öryggi sýna allt að 81% færri veikindadaga, 18% meiri framleiðni og 23% meiri arðsemi miðað við þau sem skora lægst. Þetta er ekki mjúkt mál heldur einn mælanlegasti þátturinn í afkomu fyrirtækja.
Fyrirtæki og stofnanir eldast eins og lífverur, frá frumkvöðlastigi til þroska. En ólíkt mannfólki þurfa fyrirtæki ekki að hrörna og deyja, það gerist bara ef ekkert er að gert. Aðferðafræði Ichak Adizes kennir hvernig æviskeið skipulagsheilda virka og hvað þarf til að halda þeim heilbrigðum á hverju stigi, hvort sem stefnt er að áframhaldandi vexti, þroska eða endurnýjun.
Það sem fjallað er um
Stig æviskeiðsins samkvæmt Adizes, frá frumkvöðlastigi til hrörnunar
Eðlileg vandamál vs. óeðlileg vandamál á hverju stigi
Hvers vegna sumar stofnanir hrörna ungar og hvernig komast hjá ótímabærri öldrun
Hagnýtt mat: hvar er ykkar fyrirtæki eða stofnun í dag?
Hentar fyrir
Alla þá sem vilja skilja stöðu fyrirtækisins eða stofnunarinnar í samhengi við æviskeið skipulagsheilda
Stjórnendateymi sem eru að taka stefnumótandi ákvarðanir
Stjórnir, eigendur og forstjóra
Hvers vegna þetta skiptir máli
Þegar stjórnendur skilja á hvaða stigi fyrirtækið er, sjá þeir hvaða áskoranir eru eðlilegar og hverjar eru viðvörunarmerki. Margt af því sem virðist vera kreppa er í raun bara eðlilegur hluti vaxtarferlis. Annað sem virðist vera smávægilegt getur verið skýrt merki um að ferli hrörnunar sé hafið og þurfi inngrip strax. Skilningurinn á æviskeiðinu er það sem gerir muninn á því hvort fyrirtæki haldi áfram að vaxa eða byrji ósjálfrátt að hrörna.
Goðsögnin um fullkomna stjórnandann sem getur allt í senn er aðeins það, goðsögn. Aðferð Ichak Adizes sýnir að góð stjórnun krefst fjögurra ólíkra hlutverka, Producer (P), Administrator (A), Entrepreneur (E) og Integrator (I), og enginn einn einstaklingur getur uppfyllt þau öll. Sterkir leiðtogar viðurkenna þetta og byggja upp komplementer teymi þar sem öll fjögur hlutverkin eru til staðar.
Það sem fjallað er um
Hvað hver bókstafur þýðir, P, A, E, I, og hvernig hver birtist í daglegu starfi
Hvers vegna „bóka-stjórnandinn" (PAEI á öllum sviðum) er hugarburður
Hvernig á að lesa eigin stjórnunarstíl og samstarfsfólks
Hvernig komplementer teymi virka og hvernig á að forðast árekstra milli ólíkra stíla
Algeng mistök sem stjórnendur gera þegar þeir reyna að vera allt í senn
Hentar fyrir
Alla þá sem vilja skilja eigin stjórnunarstíl og annarra í teyminu
Stjórnendateymi sem vilja byggja upp komplementer samvinnu
Leiðtogaprógramm og þjálfun nýrra stjórnenda
Stjórnir og forstjóra sem vilja meta samsetningu eigin teymis
Hvers vegna þetta skiptir máli
Þegar stjórnandi reynir að vera allt í senn, framleiðandi, skipuleggjari, frumkvöðull og samhugur, er hann í raun ekkert af þessu nógu vel. Þegar stjórnendateymi þekkir styrkleika sína og veikleika í þessu samhengi, breytast samtölin. Það sem áður leit út sem persónulegir árekstrar verður skiljanleg hlutverkamunur, og fólk byrjar að nýta hvert annað í stað þess að berjast við hvert annað.
Við stýrum vinnustofum með ykkar eigin efni. Þið komið með innihaldið, hvaða svið sem það er, og við sjáum um að halda umræðunni málefnalegri og tryggja að niðurstaðan verði hagnýt og hópurinn standi saman á bak við hana.
Það sem þið fáið
Hlutlausan leiðbeinanda sem stýrir umræðunni
Aðferðafræði sem hentar ykkar efni og hópi
Verkfæri til að ná raunverulegum niðurstöðum, ekki bara samræðum
Stytt útgáfa Stefnuhraðallsins, námskeiðs í stefnumiðaðri leiðtogafærni sem sameinar fræðslu, hagnýtar æfingar og vinnu stjórnenda með eigin stefnu. Stjórnendateymið fer í gegnum þrjá lykilþætti, frá gildum og menningu yfir í 3 til 5 ára áætlun og OKR-mörkun, og kemur út með samhæfða stefnu sem lifir í daglegu starfi.
Þrír þættir vinnustofunnar
Vegferðin: gildi, menning og hlutverk leiðtoga sem grunnur fyrir allt hitt
Leiðin: sameiginleg sýn og meginmarkmið, hvar viljum við vera eftir 3 til 5 ár
GPS-kerfið: OKR-aðferðafræðin og mælanleg markmið samstillt þvert á svið
Markmið og afurð
Skýr og sameiginleg sýn sem allt stjórnendateymið styður
3 til 5 ára meginmarkmið sem hafa skuldbindingu allra
OKR-mörkun fyrir næsta ársfjórðung með skýrum ábyrgðaraðilum
Samstilling milli sviða um forgangsmál
Stefna sem lifir í daglegu starfi, ekki bara á blaði
Aukin starfsánægja gegnum skýrt hlutverk og stefnu
Hentar fyrir
Stjórnendateymi sem eru að móta eða endurmóta stefnu
Forstjóra, framkvæmdastjóra og stjórnir sem vilja stefnu sem lifir